Erlent

Ný lota réttarhalda yfir Saddam Hussein

Segir dómstól ólögmætan Einræðisherrann fyrrverandi sparaði ekki stóru orðin er hann fékk að tjá sig um nýju ákærurnar í gær.
Segir dómstól ólögmætan Einræðisherrann fyrrverandi sparaði ekki stóru orðin er hann fékk að tjá sig um nýju ákærurnar í gær. MYND/AP

Saddam Hussein neitaði í gær að tjá sig um ákærur þær sem á hann eru bornar í nýju réttarhaldi sem hófst yfir honum og sex öðrum sakborningum í gær. Er honum var gefið tækifæri til að tjá sig við upphaf réttarhaldsins ítrekaði hann þá skoðun sína að dómstóllinn væri ólögmætur og réttarhaldið allt skrípaleikur einn.

Ákærurnar í þessu nýja réttarhaldi snúa að umdeildum aðgerðum íraska hersins í Kúrdahéruðunum í Norður-Írak á árunum 1987 til 1988. Aðgerðirnar eru kenndar við bæinn Anfal, en í þeim voru tugir þúsunda Kúrda drepnir.

Saksóknarar sýndu réttinum í gær myndir af jarðneskum leifum kvenna og barna sem grafin voru upp úr fjöldagröfum á vettvangi Anfal-aðgerðanna, þar á meðal eina af pelabarni sem enn hélt á mjólkurpelanum sínum. Ákæruvaldið sýndi einnig stórt landabréf af Norður-Írak, þar sem búið var að merkja inn á fjölda þorpa og bæja sem fullyrt er að herinn hafi, að skipun Saddams, þurrkað út allt líf í, meðal annars með því að beita sinneps- og taugagasi.

„Það er kominn tími til að mannkynið fái að vita ... umfang glæpanna sem framdir voru gegn íbúum Kúrdistans,“ sagði aðalsaksóknarinn Munquith al-Faroon. „Heilu bæirnir voru jafnaðir við jörðu, eins og það hefði ekki verið nóg að drepa allt fólkið,“ sagði hann.

Réttarhaldið sem hófst í gær er önnur lotan í réttarhöldum yfir einræðisherranum fyrrverandi, þar sem gert er upp við meinta harðstjórnarglæpi áratugalangrar stjórnartíðar hans. Dómur hefur enn ekki verið kveðinn upp í fyrstu lotunni, þar sem réttað var í máli sem varðaði dráp á sjía-múslimum í bænum Dujail á níunda áratugnum. Verði Saddam sakfelldur í öðru hvoru málinu á hann yfir höfði sér dauðadóm.

Saddam mætti á sakamannabekkinn í sömu dökku jakkafötunum og hann klæddist í hvert sinn sem hann sást við Dujail-réttarhaldið, sem stóð yfir í níu mánuði. En aðrar persónur og leikendur eru að þessu sinni breyttar.

Nýr aðaldómari stýrir réttarhaldinu að þessu sinni. Og sex með-sakborningar hans eru einnig aðrir en áður. Þeir eru nær allir fyrrverandi yfirmenn í hernum. Þeirra þekktastur er Ali Hassan al-Majid, frændi Saddams, betur þekktur sem „Efnavopna-Ali“ vegna eiturgassins sem hann var þekktur fyrir að beita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×