Dæmi eru um laun í evrum 26. ágúst 2006 06:00 Forsvarsmenn Marels Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður og Hörður Arnarson forstjóri Marels ræða saman í höfuðstöðvum fyrirtækisins. MYND/GVA
Þekkt eru dæmi um að starfsmenn hér á landi hafi samið um launagreiðslur í evrum. Nýverið upplýsti framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins að þar á bæ veltu menn fyrir sér þeim möguleika að fólk tæki laun að hluta út í erlendum gjaldmiðli. Þá þekkist að stjórnarmenn fyrirtækja sem mest hafa umsvif í útlöndum fái fái greitt fyrir störf sín í þeim gjaldmiðli sem fyrirtækin nota mest. Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marels, segir að vel hafi verið tekið í umleitan starfsmanna sem farið hafi fram á að semja um launagreiðslur í evrum, en hluti yfirmanna fyrirtækisins hefur kosið að fara þá leið. Svo eru stjórnarmenn algjörlega í evrum, segir hann. Sömu leið hafa kosið að fara fyrirtækin Bakkavör sem greiðir stjórnarmönnum laun í sterlingspundum og Össur sem greiðir stjórninni laun í Bandaríkjadölum. Við erum náttúrlega bara með 330 starfsmenn af tveimur þúsundum á Íslandi, en það er rétt að hluti þeirra þiggur laun evrutengt, segir Árni Oddur og bætir við að þarna sé um eðlilega þróun að ræða. Ef langtímatraust er milli starfsmanna og félagsins skapar þetta möguleikann á að menn taki hluta skulda sinna í evrum, svo sem húsnæðislán. Þá segir hann tómt mál að tala um að ætla að fá erlenda stjórnarmenn að félaginu ef semja eigi við þá um laun í íslenskum krónum. Hjá Actavis fengust þær upplýsingar að starfsmenn fengju almennt laun í mynt landsins þar sem þeir væru staðsettir.
Viðskipti Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira