Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. október 2026 10:42 Með þessum breytingum þurfa Airbnb-gestir ekki lengur að vaska upp eða fara út með ruslið. Getty Gestgjafar sem setja húsnæði á leigu í gegnum Airbnb geta ekki lengur krafið gesti um að taka utan af rúminu eða vaska upp samkvæmt nýjum reglum. Breyttar reglur taka gildi í nóvember.
Breytingarnar falla undir alþjóðlega stefnu Airbnb og er þeim ætlað að takmarka húsverkin sem gestum er ætlað að sinna, svo sem að ganga frá eftir sig. Ákveðið var að ráðast í breytingarnar eftir fjölda kvartana frá gestum yfir því að þurfa að greiða þrifgjöld en samt sem áður að ljúka lista af húsverkum fyrir gestgjafann. Uppfærðar reglur voru birtar í vikunni samkvæmt umfjöllun The Guardian og í þeim segir að gestgjöfum sé almennt ekki lengur heimilt að biðja gesti um að sinna verkum sem „krefjast verulegrar fyrirhafnar eða tíma eða yrðu að jafnaði unnin af ræstitækni“. Undir þetta fellur að taka rúmföt af rúmum, fara út með ruslið, vaska upp og ganga frá leirtaui. Þá geta gestgjafar bætt við sjö stöðluðum reglum og „sanngjörnum“ beiðnum. Sem dæmi geta beiðnirnar verið að stytta sturtutíma vegna vatnstakmarkana eða að setja rusl í ílát sem dýr komast ekki í. Sömuleiðis má biðja um að setja notað leirtau í vaskinn. „Reglur hjálpa gestum að skilja hvers gestgjafar ætlast til, en við höfum heyrt frá samfélagi okkar að þær geti verið ruglingslegar, íþyngjandi og erfiðar,“ sagði talsmaður Airbnb. Frá því í apríl 2025 var gestgjöfum heimilt að fella þrifakostnaðinn inn í heildarverð dvalarinnar og þar með ekki taka þrifagjöldin sérstaklega fram. Nýju reglurnar taka gildi 20. nóvember.
Airbnb Ferðaþjónusta Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sjá meira