Erlent

Átökin ekki borgarastríð

Blóðug helgi Um 50 manns létu lífið í árásum í Írak í gær. Hér heldur Bagdadbúi á syni sínum sem særðist í bílsprengjuárás.
Blóðug helgi Um 50 manns létu lífið í árásum í Írak í gær. Hér heldur Bagdadbúi á syni sínum sem særðist í bílsprengjuárás. MYND/AP

Bylgja sprengju- og skotárása gekk yfir Írak þvert og endilangt í gær. Að minnsta kosti 51 maður lét lífið í árásunum, þrátt fyrir að gripið hafi verið til umfangsmikilla aðgerða til að auka öryggi borgaranna í höfuðborginni Bagdad og áskoranir frá forsætisráðherranum Nouri al-Maliki, sem er sjía-múslimi, um að landar hans úr ólíkum trúarhópum hætti gagnkvæmum árásum.

Al-Maliki hélt því enn fremur fram að tekið væri að draga úr átökum trúarhópa og að ríkisstjórn hans væri að ná árangri í að stöðva bæði bræðravíg sjía og súnnía og árásir uppreisnarmanna.

Það er ekki borgarastríð. Það verður aldrei borgarastríð í Írak, lýsti hann yfir í sjónvarpsviðtali.

En mannfallið hélt áfram. Minnst 51 lét lífið í skot- og sprengjuárásum vítt og breitt um landið, þar á meðal í Kirkuk í norðri og Basra í suðri, auk Bagdad og nágrennis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×