Erlent

Vilja að stjórnvöld sýni varúð

Stærsti stjórnarandstöðuflokkur hindúa á Indlandi hefur hvatt stjórnvöld til að sýna varúð í friðarviðræðum við Pakistan sem hófust að nýju um helgina. Viðræðunum hafði verið frestað eftir að hryðjuverkamenn sprengdu upp lestir í Mumbai í júlí síðastliðnum.

Flokkurinn segir algjört misræmi vera milli almenningsálitsins í landinu og viðbragða stjórnvalda vegna hryðjuverkanna, en um 200 manns létust í árásunum. Leiðtogar nágrannalandanna hittust á Kúbu um helgina til að halda friðarviðræðum áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×