Erlent

Boðað verði til þingkosninga

Helle Thorning-Schmidt
Helle Thorning-Schmidt

Helle Thorning-Schmidt, formaður danska Jafnaðarmannaflokksins, vill að boðað verði til kosninga í landinu sem fyrst. Segir hún danska velferðarkerfið í hættu vegna skattalækkana ríkisstjórnarinnar. Talsmaður ríkisstjórnarflokksins Venstre segir hugmyndina ekki koma sér á óvart.

Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun á fylgi flokka í Danmörku eykst fylgi við Jafnaðarmannaflokkinn um tæp fjögur prósentustig. Minnkandi stuðningur við ríkisstjórnina skrifast á óvinsældir íhaldsmanna. En þeir fengju aðeins átta prósent atkvæða ef kosið yrði nú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×