Erlent

Vélhjólaforingi handtekinn

Einn af leiðtogum vélhjólagengisins Bandidos í Svíþjóð var handtekinn í Gautaborg í gær í tengslum við tvær bílasprengjur, sem sprungu þar í borg á þriðjudag og miðvikudag.

Lögreglan telur að sprengjuárásirnar hafi verið gerðar í hefndarskyni gegn leigubílstjóra og manni, sem sagður er þekktur í veitingahúsageiranum í Gautaborg.

Enginn lét lífið af völdum sprenginganna, sem báðar voru framkvæmdar þannig að handsprengja var sett bak við eitt af hjólum bifreiðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×