Erlent

Fjórir grunaðir um hryðjuverk

Viðbragðsæfing á Kastrup-flugvelli Danskar og sænskar varðsveitir efndu til æfinga á Kastrup-flugvelli á miðvikudaginn þar sem líkt var eftir árás hryðjuverkamanna.
Viðbragðsæfing á Kastrup-flugvelli Danskar og sænskar varðsveitir efndu til æfinga á Kastrup-flugvelli á miðvikudaginn þar sem líkt var eftir árás hryðjuverkamanna. MYND/AP

Fjórir menn voru handteknir í Noregi á þriðjudaginn, grunaðir um að hafa staðið að skotárás á samkunduhús gyðinga í Ósló um síðustu helgi. Þeir eru einnig grunaðir um að hafa skipulagt sprengjuárásir á bandaríska og ísraelska sendiráðið í Ósló. Frá þessu var skýrt í norskum fjölmiðlum í gær.

Ákærur á hendur mönnunum eru að hluta byggðar á upptökum úr hlerunarbúnaði, sem hafði verið komið fyrir í bifreið eins þeirra. Samkvæmt fréttaflutningi norskra fjölmiðla heyrðust mennirnir þar ræða sín á milli um sprengjuárásir á sendiráðin.

Einnig eru þeir sagðir hafa talað um að höggva höfuðið af Miriam Shomrat, sendiherra Ísraels í Noregi.

Hættan af hryðjuverkum hefur verið mikið til umræðu á Norðurlöndunum nú í vikunni.

Á fimmtudaginn fullyrti leyniþjónusta dönsku lögreglunnar, PET, að hættan af íslömskum hryðjuverkamönnum í Evrópu stafaði helst af litlum og einangruðum hópum, en síður af stærri og þekktari samtökum á borð við Al Kaída.

Þetta kom fram í ársskýrslu PET, þar sem segir enn fremur að hættan á slíkum hryðjuverkum sé meiri nú en áður, meðal annars í Danmörku, og þá beinlínis vegna þátttöku Dana í hernaði í Írak og Afganistan. Einnig hafi birting skopmyndanna af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum gert sitt til þess að auka hættuna.

Danska leyniþjónustan segist hafa á þessu ári fengið veður af meira en tvö hundruð hótunum, sem bárust í tengslum við skopmyndirnar af Múhameð. Ekki er þó tekið fram hvort þær hótanir hafi allar komið frá herskáum múslimum eða hvort sumar þeirra hafi beinst að múslimum sem búa í Danmörku.

Á fimmtudaginn hittust einnig í Finnlandi dómsmála- og innanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna til þess að ræða aðferðir til að berjast gegn bæði hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi.

Þeir komust að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt væri að efla samstarf ríkjanna á þessu sviði til þess að ná betri árangri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×