Erlent

Múslimar fasta

Ramadan í múslimalöndum.
Í Kabul, Afganistan, byrjaði Ramadan á laugardaginn.
Ramadan í múslimalöndum. Í Kabul, Afganistan, byrjaði Ramadan á laugardaginn.

Ramadan er byrjaður í flestum ríkjum múslima í Mið-Austurlöndum en mánuðurinn hefst þegar nýtt tungl rís í níunda mánuði ársins samkvæmt Hijri-dagatalinu.

Múslimar trúa því að Kóraninn hafi verið gerður Múhameð spámanni opinber í Ramadan fyrir um 1.400 árum og þess vegna sé hann helgur mánuður.

Á meðan á Ramadan stendur fasta múslimar bæði á mat og drykk frá sólarupprás til sólarlags, auk þess sem þeir reykja ekki eða stunda kynlíf. Slæmar hugsanir og gjörðir á einnig að forðast í mánuðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×