Erlent

Frekar Satan en Hillary Clinton

Áhrifamikill evangelískur predikari lýsti því yfir í gær að fólkið í sínu kjördæmi myndi leggja harðar að sér við að koma í veg fyrir mögulegt forsetakjör demókratans Hillary Clintons en þótt Lúsifer sjálfur færi í framboð.

Séra Jerry Falwell lét þessi ummæli falla á „fundi um gildismat“ með öðrum bandarískum trúarleiðtogum. Á fundinum var rætt um þau gildi og hefðir sem áhersla yrði á í kosningabaráttunni. Aðstoðarmaður Falwells gerði lítið úr ummælunum og sagði prestinn ekki hafa ætlað að líkja frú Clinton við djöfulinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×