Erlent

Fjórir handteknir í ferju

Fjórir sænskir nýnasistar voru handteknir eftir að þeir sýndu ferjufarþegum, sem ekki litu út fyrir að vera norrænir, kynþáttafordóma og ofbeldi á laugardag, segir á fréttavef sænska dagblaðsins Dagens Nyheter.

Ferjan Skandinavíuprinsessan var á leið frá Kristiansandi í Noregi til Gautaborgar í Svíþjóð þegar mennirnir hófu dólgslæti sín og létu ekki af þeim þótt starfsfólk ferjunnar hefði skipt sér af þeim.

Ein kona og tveir menn munu hafa verið beitt ofbeldi, að sögn Ola Lindow lögregluþjóns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×