Erlent

Áhersla á félagslega ábyrgð

David Cameron Opnaði flokksþing Íhaldsflokksins á sunnudaginn.
David Cameron Opnaði flokksþing Íhaldsflokksins á sunnudaginn. MYND/AP
Félagsleg ábyrgð, það er kjarninn í frjálslyndri íhaldsstefnu, sagði David Cameron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, við upphaf flokksþingsins í gær.

Hann sagði að Íhaldsflokkurinn hafnaði þeirri stefnu ríkis-á­byrgðar" sem Verkamannaflokkurinn hefur fylgt undir forystu Tonys Blair, en vilji í staðinn að almenningur taki sjálft ábyrgð á umhverfi sínu og samfélaginu.

Félagsleg ábyrgð það er okkar hugmynd, sagði hann í fyrstu ræðu sinni á flokksþingi Íhaldsflokksins sem formaður flokksins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×