Þjóðarsálin í reiðhöllinni 6. október 2006 11:00 Sigrún sól leikstjóri. Í karnívalinu birtist mannlífið í allri sinni mynd. MYND/E.ÓL
Leikarar, fimleikafólk og kraftajötnar leiða saman hesta sína, í bókstaflegum skilningi, í reiðhöll Gusts á sunnudag þegar hin risavaxna karnivalsýning Þjóðarsálin verður frumsýnd. Þetta er spunaleiksýning sem byggir á háþróaðri leikhúshönnun og flottri hestasýningu, segir Sigrún Sól Ólafsdóttir, leikstjóri verksins og helsti hugmyndasmiður þess. Undanfarin ár hef ég sett upp nokkrar spunasýningar þar sem ég hef búið til handritið ásamt leikurunum. Við höfum tekið fyrir ákveðin mál sem brenna okkur á hjarta og í þetta sinn varð íslenska þjóðarsálin fyrir valinu. Þetta er frasi sem er oft notaður á tyllidögum en við vildum rýna í hvað þetta er og hvort það sé raunverulega ein þjóðarsál á Íslandi. Fimm leikarar leika fulltrúa ólíkra þjóðfélagshópa og í gegnum karnívalið, skrautsýningar, hestasýningar og mikið drama, er reynt að bregða ljósi á hvort þessar manneskjur eiga eitthvað sameiginlegt og hvað bindur þær saman. Mannlífið í allri sinni mynd kemur fram í karnívalinu, bæði fallegu hliðarnar og þær ljótu. Þetta er heilmikil ádeila en áhorfendum er látið eftir að draga sínar ályktanir í lok sýningar, segir Sigrún Sól. Þetta er sannkölluð risasýning og á sér vart fordæmi hér á landi. Alls taka um 50 manns þátt í sýningunni; fyrir utan leikarana kemur fimleikafólk og kvennakór við sögu auk þess sem atvinnuknapar lána hesta og skipuleggja hestasýninguna. Þau hafa verið við stífar æfingar síðastliðnar fimm vikur en hugmyndavinnan hefur staðið frá því í vor. Sýningin er einkaframtak og Sigrún Sól segir að það hefði verið ógjörningur að setja hana upp án sjálfboðavinnu, styrkja og bakhjarla. Margir lögðu til vinnu sína listarinnar vegna, sem er ómetanlegt. Þá fengum við myndarlegan styrk frá menntamálaráðuneytinu, Kópavogsbær og hestamannafélagið Gustur lögðu til reiðhöllina og Landsbankinn er bakhjarl sýningarinnar. Án stuðnings þeirra allra hefði þessi sýning ekki orðið að veruleika. Árni Pétur Guðjónsson, Harpa Arnardóttir, Jóhann G. Jóhannssson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Árni Salómonsson fara með aðalhlutverkin og Sigrún Sól er alsæl með leikhópinn. Þetta er ótrúlegt fólk. Margir hefðu spyrnt við fótum þegar þeir heyrðu að það væri ekkert handrit og þeir þyrftu að búa til persónurnar frá grunni. En þau, eins og aðrir í sýningunni, lögðust á eitt svo boltinn hélt áfram að hlaða utan á sig. Ég held að ég geti að minnsta kosti lofað því að það fer enginn ósnortinn af þessari sýningu. Þjóðarsálin verður sýnd í reiðhöll Gusts í október og fram í nóvember og Sigrún Sól bendir á að það sé betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Ég held að fólk ætti að reyna að tryggja sér miða strax því salan hefur þegar farið vel af stað og það er orðið uppselt á nokkrar sýningar. Nánari upplýsingar um sýninguna og miðapantanir má finna á vefsíðunni einleikhusid.is.
Menning Mest lesið „Allir að hlusta, en samt fórum við í gjaldþrot“ Lífið Stjörnulífið: „Gellufélagið túttast á Tene“ Lífið Gullni hringurinn í Vesturbænum uppskrift að drauma sunnudegi Lífið Er ósigrandi á sviði og sækir orkuna niður í jörð Tónlist Fundu hvort annað hjá Val Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Ben McKenzie á Kaffi Vest Lífið Hefur ekki hitt öll 26 systkini sín Lífið „Ef ég væri ekki prestur væri gaman að vera poppstjarna“ Tíska og hönnun Sláandi og óhugnanlegar staðreyndir á strimlum Aþenu Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: „Gellufélagið túttast á Tene“ Gullni hringurinn í Vesturbænum uppskrift að drauma sunnudegi „Allir að hlusta, en samt fórum við í gjaldþrot“ Ben McKenzie á Kaffi Vest Hefur ekki hitt öll 26 systkini sín Endurnýjuðu heitin í ráðhúsinu þar sem tæplega þrjátíu voru gefin saman Plortedo prófar nýja Elden Ring aukapakkann Sviptir hulunni af kílóatölunni Reiður, æstur, dapur, viðkunnalegur, glaður og elskulegur Danadrottning klæddi af sér kuldann með íslenskri hönnun Fundu hvort annað hjá Val Skoski hópdansinn endaði óvænt sem algjör hápunktur Tuttugu og sex pör „ganga í það óheilaga“ á einu bretti Skvísurnar skelltu sér á ströndina Sláandi og óhugnanlegar staðreyndir á strimlum Aþenu Ekki fyrir þá miklu athygli sem fylgir hjónabandinu Fann fyrir nærveru hinna látnu í Auschwitz Helvítis kokkurinn: Fullkominn helvítis hamborgari Travis Scott handtekinn í Miami Börn verði tekin framyfir gæluverkefni Allar líkur á því að eiginmaður Páls Óskars verði íslenskur ríkisborgari Kóngurinn er sá sem keypti Fender Telecaster-frímerkið „Margoft verið haldið framhjá mér“ Egill og villta vestrið í Víkinni Jaðarlistamenn eiga sviðið í vikunni Kevin Costner opnar sig um slúðrið Dúxinn Max er „tölvuleikjanörd“ og mætti á öll böllin Vilt þú taka þátt í fimmtu þáttaröð af Skreytum hús? Birgir og Lísa selja hús í sérflokki Getur varla lesið Sjálfstætt fólk lengur Sjá meira