Lífið

Birgir og Lísa selja hús í sér­flokki

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Birgir og Lísa hafa sett afar glæsilegt hús í Teigunum á sölu.
Birgir og Lísa hafa sett afar glæsilegt hús í Teigunum á sölu. Vísir/Vilhelm

Birgir Jónsson, fyrrverandi forstjóri Play, og eiginkona hans Lísa Ólafsdóttir hafa sett glæsilegt hús við Hraunteig í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 205 milljónir.

Um er að ræða 230 fermetra parhús sem var byggt árið 2007. Í húsinu eru fimm til sex herbergi, þrjú baðherbergi og eitt gestasalerni. 

Stofa er björt og rúmgóð með sérsmíðuðum arni og stein syllu undir úr íslensku grágrýti. Í stofu eru sérsmíðaðar áfastar hillur og sjónvarpsskápur með góðum hirslum. Úr stofu er útgengi á skjólgóðar svalir í suður og þaðan er gengið niður í gróðursælan garð. Einstaklega fallegur hlynur er fyrir miðjum garði ásamt öðrum fallegum gróðri og steinhleðslum.

Heimili hjónanna er innréttað á hlýlegan máta þar sem fallegir munir og listaverk prýða hvern krók og kima.

 Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.