Ikea er stærsta verslun landsins 18. október 2006 06:30 Úr verslun Ikea Í nýrri verslun Ikea eru nokkrar íbúðir til sýnis. Hugmyndin er að fá kokk til að elda í einhverju þeirra fjölmörgu eldhúsa sem eru til sýnis í versluninni á næstunni. MYND/Vilhelm
Húsgagnaverslunin Ikea flutti vöruhús sitt og verslun úr Holtagörðum í Reykjavík í Kauptún í Garðabæ á fimmtudag í síðustu viku. Langt er um liðið síðan rekstur Ikea á Íslandi rúmaðist í einni lítilli deild í verslun Hagkaupa. Hin nýja verslun Ikea, sem var sérstaklega byggð fyrir fyrirtækið er á tveimur hæðum, og er hvorki meira né minna en 20.600 fermetrar og stærsta verslunarhúsnæði sem reist hefur verið á Íslandi. Deild í hagkaupumstærsta verslun landsins Ikea flutti í stærsta verslunarhúsnæði landsins undir lok síðustu viku. Rýmið er tæplega þrefalt stærra, veitingastaðurinn sömuleiðis og bílastæðin þrefalt fleiri. Þá tók nýr framkvæmdastjóri við rekstrinum. Viðskiptavinir Ikea ruglast ekki í ríminu þótt þeir fari utan landsteina því verslanir Ikea eru næstum eins í öllum löndum. Markaðurinn/VilhelmRekstur Ikea hér á landi hófst árið 1981. Þetta var tíunda landið sem Ikea opnaði verslun í en áður hafði fyrirtækið dreift úr sér um gjörvalla Skandinavíu og nokkur Evrópulönd til viðbótar.Fyrsta verslunin opnaði í litlu rými á efri hæð Hagkaupa í Skeifunni en fluttist nokkrum árum síðar undir Hús verslunarinnar gegnt Kringlunni. Þetta þótti geysistórt rými en ekkert miðað við það þegar Ikea fór í Holtagarða árið 1994. Þar hafði stórmarkaðurinn Mikligarður verið áður til húsa í um 9.000 fermetrum.Þórarinn Ævarsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Ikea, sem tók við af Jóhannesi Rúnari Jóhannessyni við flutninginn, segir breytinguna mikla. Ikea hafi eiginlega verið á undanþágu frá Ikea enda Holtagarðar sniðnir sem vöruhús.Þórarinn segir aðkomuna að Holtagörðum og skort á bílastæðum hafa verið helsta Akkilesarhæl Ikea. Í fyrra voru viðskiptavinirnir tæplega tvær milljónir talsins en búist er við að þeir verði þrjár milljónir á þessu ári. Þakkar hann það mikilli aukningu á bílastæðum við nýja húsið. Svipuðu máli gegnir um veltuna en hún var þrír milljarðar króna á síðasta ári.Klæðskerasniðið húsNýja húsnæðið er gert eftir grunnteikningu frá Ikea í Svíþjóð og þannig klæðskerasaumað fyrir reksturinn. Af þessu leiðir að næstum allar verslanir Ikea úti í hinum stóra heimi eru eins og verslunin í Kauptúni og verður upplifun viðskiptavinar Ikea því nokkurn veginn sú sama hér og í öðrum löndum, að sögn Þórarins.Hugmyndin um Ikea er að leiða alla í hring. Fyrst er farið í gegnum húsgagnadeildina. Á leiðinni geta gestir sest niður, fengið sér að borða og haldið áfram að því loknu í gegnum smávörudeild og lager. Verslunarhúsnæðið er sambærilegt að stærð og í öðrum löndum en lagerinn er mismunandi. Ef við ákveðum að stækka húsið þá verður það lagerinn sem stækkar, segir Þórarinn og bendir á að verslanirnar ytra séu allt upp undir 24.000 fermetrar. Sýningarsvæðið í húsinu er fullkomið fyrir okkur og það mun ekki breytast, segir hann.Umtalsverður munur er á IKEA í Holtagörðum og versluninni í Kauptúni í Garðabæ. Sýningarsvæðið er talsvert stærra. Þórarinn segir vöruúrval hafa aukist um fjórðung í nýju versluninni auk þess sem fleiri lausnir séu kynntar nú en áður. Í Holtagörðum gátum við sýnt sjö eða átta mismunandi eldhús en nú getum við sýnt allt að 18 fullbúin eldhús, segir hann og leggur mikla áherslu á hversu gott nýja verslunarhúsnæðið sé.matreitt í eldhúsinuHoltagörðum sýndi Ikea mismunandi lausnir á einu heimili, fullbúnu rými með herbergjum, eldhúsi og innanstokksmunum. Hérna erum við með þrjú fullbúin heimili sem vel má ímynda sér að einhver búi í, sjónvarpið er í gangi og í framtíðinni er stefnt að því að einhver eldi í eldhúsunum, segir Þórarinn.Þá er veitingastaðurinn umtalsvert stærri en hann var í Holtagörðum. Fyrir flutningana gátu 80 gestir setið við borð í veitingarýminu en í Kauptúni eru sæti fyrir 250 manns, sem gerir þetta að stærsta veitingahúsi landsins. Engir réttir eru dýrari en 490 krónur auk þess sem stefnt er að því að bjóða léttvín til sölu á vægu verði. Vonast er til að af því verði um næstu helgi, að sögn Þórarins Ævarssonar, framkvæmdastjóra Ikea.
Úttekt Viðskipti Mest lesið Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Samstarf Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Sjá meira