Viðskipti innlent

Um­boð til breytinga á eignar­haldi Ljósleiðarans

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sævar Freyr Þráinsson er forstjóri Orkuveitunnar.
Sævar Freyr Þráinsson er forstjóri Orkuveitunnar. Orkuveitan

Hluthafafundur Ljósleiðarans ehf. samþykkti í dag að veita umboð til mögulegra breytinga á eignarhaldi á Ljósleiðaranum.

Samþykkt fundarins var með fyrirvara um staðfestingu eigenda Orkuveitunnar sem eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð en Ljósleiðarinn er að öllu leyti í eigu Orkuveitunnar. Umboðið, hljóti það staðfestingu eigenda, verður í höndum forstjóra Orkuveitunnar sem fer með hlutafé Orkuveitunnar í Ljósleiðaranum.

Samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitunni gæti samþykktin leitt til þess að nýir fjárfestar eignist Ljósleiðarann að hluta eða í heild eða að félagið verði skráð á markað.

Að því er fram kemur í tilkynningunni veittu eigendur Orkuveitunnar tímabundið umboð til aukningar hlutafjár og sölu nýrra hluta árið 2023. Það ferli leiddi ekki til samninga. Fram undan er eigendafundur Orkuveitunnar, skipaður fulltrúum sveitarfélaganna þriggja, sem þarf að staðfesta samþykktina.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með ferlinu framundan, fáist til þess umboð frá eigendum Orkuveitunnar.

Haft er eftir Sævari Frey Þráinssyni forstjóra Orkuveitunnar að markmiðið sé að efla Ljósleiðarann.

„Það er hugsanlega enginn angi atvinnulífsins jafn kvikur og fjarskiptamarkaðurinn. Við sjáum það hér á landi og um allan heim. Markmiðið er að efla Ljósleiðarann til að standa vörð um verðmæti; verðmætin í sjálfu fyrirtækinu fyrir eigendur þess og verðmætin fyrir almenning í þeirri þjónustu sem það hefur verið í fararbroddi um að veita. Umboðið sem við erum að biðja um snýst um að fá fjölbreytt verkfæri til að sækja að þessum markmiðum með opnum huga án þess að niðurstaðan sé fyrirfram gefin,“ er haft eftir honum í tilkynningu.

„Sala Ljósleiðarans var vissulega á verkefnalista nýs meirihluta í Reykjavík. Með samþykktinni er þess freistað að hámarka virði Ljósleiðarans fyrir eigendur og koma félaginu í verð. Ég hef verið þeirrar skoðunar að borgin eigi ekki að reka fyrirtæki í samkeppnisrekstri, og fylgist því spennt með framvindu málsins næstu mánuði," segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×