Mýrin slær aðsóknarmet 20. nóvember 2006 14:45 Ólafía Hrönn Jónsdóttir í Mýrinni sem er að slá aðsóknarmet fyrri mynda íslenskra og skákar Pirates of the Carabian MYND/ Sögn Bergsteinn Björgúlfsson
Mýrin heldur áfram sigurgöngu sinni og er orðin aðsóknarmesta mynd ársins, hefur slegið út kafla tvö í þríleik Disney um afturgengna sjóræningja í Karabíska hafinu. Þegar þetta er ritað um miðjan dag á sunnudegi hafa sjötíu þúsund kvikmyndahúsagestir séð gerð Baltasar Kormáks af sakamálasögu Arnaldar Indriðasonar. Er Baltasar Kormákur leikstjóri og annar framleiðenda myndarinnar að vonum ánægður. Mýrin stefnir í að ná eldri metum í aðsókn íslenskra kvikmynda, Engla alheimsins sem var sótt af ríflega 80 þúsund gestum og gamla metið sem Allt á hreinu átti fyrir daga skipulegrar talningar en hana sá vel á tug yfir hundrað þúsund gesti. Baltasar wer að nonum ánægður með þessar viðtökur á þessum þrjátíu dögum sem myndin hefur verið í sýningu. Myndin er ekki enn farin í kynningu erlendis en Bavaria Films annast dreifinguna. Réttur er þannig þegar seldur til Þýskalands og norðurlandanna. Segir Baltasar að strax eftir áramótin taki hann til viðað koma myndinn í a framfæri við hátíðir og dreifingaraðila í öðrum löndum. Aðspurður hvaða áhrif þessar viðtökur hafi á verkefni hans næstu misseri þá segir hann að nú verði hann að snúa sér að sviðsetningum í leikhúsi að nýju. Sviðsetning hans á Pétri Gaut gengur enn fyrir fullu húsi í Kassa Þjóðleikhússins og lýkur sýningum þar um áramót. Þaðan verður sviðsetningin flutt til London og kemur þar upp í Barbican-leikhúsinu í febrúar og verður á fjölunum í tvær vikur. Þá hefur Baltasar boðist að setja sviðsetningu sína upp með þarlendum leikurum í Moskvu og Vilníus, en Rimas Tuminas, leikstjóri og leikhússtjóri, sem hér vann talsvert á sínum tíma bauð honum að vinna verkið þar en hann er að taka við stjórn leikhúsa þar eystra. Þá er fyrirhugað að fara með íslensku sýninguna til Póllands og sýna hana á leikhúshátíð þar þegar sýningum í Bretlandi lýkur. Blatasar segist halda áfram að þjóna tveimur herrum. Sér standi til boða sviðasetningar hér heima og umboðsmaður hans er hér á landi þessa dagana: "Ameríski búnkinn af handritum er hér alltaf og minnkar ekki en ég er mishrifinn af því öllu. Svo er ég að vinna að verki sem byggir á Ivanov eftir Tjekov sem verður að hluta unnið með spuna og ég vil bæði sjá á sviði og hvíta tjaldinu með sama leikhópnum." Þegar þetta er ritað eru menn að búa sig undir Edduna sem verður í kvöld en þar hefur Mýrin hlotið fimm tilnefningar. Ætti framgangur hennar þar að tryggja enn betri aðsók næstu vikur sem gerði aðsókn hennar að sögulegum tíðindum í íslenskri kvikmyndagerð.
Menning Mest lesið Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Lífið Dóttir Annýjar og Heiðars nefnd í dag Lífið Leiksigur Ladda Gagnrýni „Sagði börnunum að vondur maður hefði meitt mömmu“ Áskorun „Þetta er meiri háttar draumur að rætast” Lífið Hundur í hjólastól í Sandgerði Lífið Ungfrú Ísland snýst ekki um fallegustu stelpuna Lífið „Hvað er Gísli Marteinn gamall?“ Lífið „Það getur enginn sært þig án þíns samþykkis“ Lífið Hélt í sér að ræða indverska drauminn í meira en ár Lífið Fleiri fréttir Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Snerting, Ljósbrot og Ljósvíkingar bítast um Edduna Bezos bolar Broccoli burt frá Bond Næsti Dumbledore fundinn Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Jóhannes Haukur fer mikinn í Marvel stiklu Svaraði kallinu frá Ben Stiller Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein