Bíó og sjónvarp

Glee snýr aftur

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Nokkrir af helstu leikurum Glee úr upprunalegu seríunni.
Nokkrir af helstu leikurum Glee úr upprunalegu seríunni. Fox

Tónlistardramaþættirnir Glee snúa aftur á skjáinn og verða endurræstir með nýrri seríu á streymisveitunum Disney+ og Hulu. Litlar upplýsingar liggja fyrir um seríuna sem mun þó innihalda bæði ný andlit og einhverja leikara úr upprunalegu seríunni.

Streymisveiturnar Disney+ og Hulu greina frá endurræsingunni (e. reboot) í tilkynningu.

Tónlistardramaþættirnir Glee eru hugarsmíði hins afkastamikla Ryan Murphy, gengu í sex þáttaraðir á Fox frá 2009 til 2015, nutu gríðarlegra vinsælda og voru sýndir hérlendis á Stöð 2. Þættirnir fjölluðu um skólakór í Lima í Ohio og glímu meðlima hans við menntaskólaárin og allt sem þeim fylgir.

Óhætt er að segja að þættirnir hafi verið risastórt menningarfyrirbæri á sínum þökk sé óvenjulegri nálgun og óheflaðri umfjöllun um málefni á borð við kynlíf ungmenna, geðheilbrigðismál og fordóma. Sömuleiðis náðu ýmsar ábreiður úr þáttunum mikilli útbreiðslu, einna helst ábreiða kórsins á smellinum „Don't Stop Believing“ eftir Journey.

Litlar upplýsingar um endurræsinguna fylgja tilkynninguna, raunar kemur einungis fram að serían verði framleidd af 20th Television og sýnd á Hulu og Disney+. Leikaraval liggur þannig ekki fyrir en ljóst er að einhverjar stjörnur úr upprunalegu þáttunum munu snúa aftur.

„Ég hef verið í bandi við um tíu leikara úr upphaflegu seríunni,“ sagði höfundurinn Murphy í nýlegu viðtali við Entertainment Tonight þar sem hann staðfesti að hann hefði skrifað handrit að nýju þáttunum með samstarfsmönnum sínum Brad Falchuk og Ian Brennan. 

Upphaflegi leikhópurinn samanstóð af leikurunum Leu Michelle, Cory Monteith, Matthew Morrison, Jane Lynch, Diönnu Agron, Chris Colfer, Darren Criss, Amber Riley, Nayu Rivera, Heather Morris, Kevin McHale, Jennu Ushkowitz, Harry Shum Jr., Chord Overstreet og Mark Salling og ýmsum fleirum.

Þá hefur stjarna upphaflegu þáttanna, Lea Michele, lýst því yfir að hún myndi glöð snúa aftur í endurræsingu á seríunni. Ekki munu þó allir snúa aftur því ýmis áföll hafa dunið á leikhópnum á síðustu þrettán árum.

Leikarinn Cory Monteith lést úr ofskömmtun árið 2013 meðan þættirnir voru enn í sýningu, Mark Salling stytti sér aldur árið 2018 eftir að hafa gengist við vörslu á barnaníðsefni og svo drukknaði Naya Rivera í stöðuvatni árið 2020.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.