Viðbrögð Írana varfærin 1. júní 2006 18:30
Íranar eru reiðubúnir til viðræðna við Bandaríkjamenn um kjarnorkumál en segja þó að ekki komi til greina að hætta auðgun úrans. Fulltrúar sex af voldugustu ríkjum veraldar sátu á rökstólum í dag og skeggræddu horfurnar. Óvænt útspil Condoleezzu Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna í gær um að stjórnvöld í Washington væru reiðubúin til fyrstu formlegu samskiptanna við ráðsherranna í Teheran frá því fyrir klerkabyltinguna 1979 hafa aukið bjartsýni um að kjarnorkudeiluna við Írana megi leysa eftir diplómatískum leiðum. Viðbrögð Írana hafa verið varfærnisleg, þeir segjast klárir í viðræður en einungis með því skilyrði að þeir geti haldið áfram úranvinnslu. Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að ef Íranar héldu þessu til streitu yrðu þeir beittir refsiaðgerðum. Utanríkisráðherrar ríkjanna fimm sem eiga fast sæti í öryggisráðinu, auk þýsks starfsbróður þeirra, hittust í Vínarborg í dag, og ræddu stöðuna. Búist er við að þeir ákveði að bjóða Írönum margvíslega aðstoð skipti þeir um skoðun en sitji þeir áfram við sinn keip er talið líklegt að gripið verði til efnahagsþvingana. Rússar og Kínverjar hafa hingað til lagst gegn slíkum aðgerðum en stjórnmálaskýrendur grunar að Bandaríkjamenn hafi gert við þá samkomulega um að samþykkja harðorða ályktun standi Íranar fast á sínu.
Erlent Fréttir Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Erlent Fleiri fréttir Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Sjá meira