Erlent

Ísraelskir hermenn skutu tvo vopnaða menn

Ísraelskir hermenn skutu tvo vopnaða menn til bana við landamæri Ísraels og Egyptalands í morgun. Að sögn talsmanna Ísraelshers voru mennirnir í egypskum hershöfðingjabúningum en ekki þykir víst að þeir hafi í raun verið hershöfðingjar. Þriðji maðurinn sem var með í för flúði aftur yfir landamærin. Egypti var einnig felldur við landamærin fyrr í vikunni í átökum sem upphófust eftir að hann reyndi að smygla ólöglegum varningi til Ísrael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×