Albert varð ekki að fellibyl 13. júní 2006 20:00
Óveðursárið 2005 er Bandaríkjamönnum í fersku minni enda var tjón af völdum fellibylja þá meira en dæmi eru um. Því er ekki að undra að íbúar Flórída hafi haft varann á þegar hitabeltislægðin Albert tók að dýpka svo um munaði fyrir nokkrum dögum. Í gær var vindhraðinn víða kominn upp í 32 metra á sekúndu, sem jafngildir ofsaveðri, og engu líkara var að allar flóðgáttir himins hefðu opnast, svo mikil var rigningin. Því sá Jeb Bush ríkisstjóri sér þann kost vænstan að lýsa yfir neyðarástandi. 16.000 heimili voru rafmagnslaus í nótt og nokkur hundruð manns leituðu skjóls í sérstökum neyðarskýlum. Ekki virtust þó allir Flórídabúar ætla taka mark á ríkisstjóranum sínum. Nokkrir brugðu sér í gönguferð í rokinu og rigningunni og jafnvel voru dæmi um fólk sem ætluðu að nota tækifærið til sjóbaða. Þegar eldaði af degi var nokkuð tekið að draga af Alberti og þar með ljóst að hann myndi sem betur fer ekki ná styrk fellibyls heldur einungis verða hressileg hitabeltislægð. Hættan er þó ekki liðin hjá því veðurfræðingar gera ráð fyrir að í það minnsta sextán fellibyljir muni myndast á þessum slóðum á næstu mánuðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Fleiri fréttir Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Sjá meira