Erlent

Palestínsk stúlka lést í átökum á Gaza

Kona gengur framhjá rústum húss í Gaza-borg í gær.
Kona gengur framhjá rústum húss í Gaza-borg í gær. MYND/AP

Átta Palestínumenn féllu og þrjátíu særðust í átökum á Gaza-ströndinni í morgun. Á meðal hinna látnu var þriggja ára gömul stúlka. Að sögn Reuters-fréttastofunnar voru hinir sjö sem féllu í árásunum skæruliðar Hamas-samtakanna. Að sögn talsmanns samtakanna eyðilögðust þrír skriðdrekar Ísraelshers í átökunum en svo virðist sem enginn hermaður hafi þó fallið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×