Erlent

12 óbreyttir borgarar féllu í Bagdad

Eldur kviknaði í fjölmörgum verslunum. Sjúkrabílar áttu ekki greiða leið að vettvangi vegna vegatálma og því varð að flytja særða á sjúkrahús í einkabílum. Þessu til viðbótar hafa þrettán lík fundist víðsvegar um landið í dag. Samkvæmt nýlegum upplýsingum frá írökskum yfirvöldum féllu rúmlega þúsund óbreyttir borgarar í landinu í júlímánuði einum auk hundrað þrjátíu og fimm öryggissveitarmanna og hundrað fjörutíu og þriggja andspyrnumanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×