Erlent

Njósnavél Hizbolla skotin niður

Ísraelsher sendi í gærkvöldi frá sér myndband sem sagt er sýna þegar vél ísrelska flughersins skýtur niður fjarstýrða smávél Hizbollah-skæruliða þar sem henni var flogið undan strönd Ísraels.

Á myndbandinu má meðal annars sjá ísraelska hermenn þar sem þeir tína upp brak úr vélinni. Ísraelsher segir að Hizbollah-liðar hafi sent minnst tvær vélar af þesari gerð í njósnaleiðangra yfir ísraelsk landsvæði frá því síðla árs 2004. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísraelsher hefur náð að skjóta eina slíka niður. Vélin mun hafa verið framleidd í Íran og getur borið fjörutíu kíló af sprengiefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×