Erlent

Segir stefnu BNA hafa beðið skipbrot

Viðurstyggð eyðileggingarinnar mætti líbönskum flóttamönnum þegar þeir sneru til síns heima í morgun. Víða stendur ekki steinn yfir steini og margir hafa misst allt sitt. Forseti Sýrlands segir stefnu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum hafa beðið skipbrot í ljósi átaka undanfarins mánaðar.

Hálfur annar sólarhringur er liðinn frá því að vopnahlé Ísraelshers og Hizbollah gekk í gildi og enn sem komið hefur friðurinn að mestu haldist. Búist er við að fjölmennt líbanskt herlið verði komið til suðurhluta landsins á fimmtudaginn og við það fara ísraelskir hermenn að draga sig smám saman suður yfir landamærin. Sá fjórðungur Líbana sem orðið hefur að yfirgefa heimili sín vegna átakanna er óðum að snúa aftur og reyna að koma lífi sínu í samt lag. Margir hafa þó ekki að neinu að hverfa því sprengjur Ísraela hafa jafnað heilu þorpin við jörðu. Verst er ástandið á þeim stöðum í suðurhluta landsins þar sem ísraelsk stjórnvöld telja að Hizbollah hafi haft bækistöðvar sínar, þar er eyðileggingin algjör.

Líbanska þjóðin virðist enn eina ferðina hafa orðið leiksoppur í valdatafli stórveldanna. Bandaríkjamenn studdu Ísraela með ráðum og dáð og Sýrlendingar, ásamt Írönum, eru sterkasti bakhjarl Hizbollah-samtakanna. Bashir Assad Sýrlandsforseti tjáði sig í fyrsta sinn um átökin í dag, sigri hrósandi.

Assad sagði Hizbollah hafa háð stórfenglegar orrustu og bætti því við að þrátt fyrir að áform Bandaríkjanna um Mið-Austurlönd væru runnin út í sandinn þá væri friðar ekki að vænta á svæðinu á meðan núverandi valdhafar í Washington réðu þar ríkjum. Vera má að sitthvað sé til í því en þá ber að hafa í huga um leið að ráðsherrarnir í Damaskus teljast tæplega til friðflytjenda fyrir botni Miðjarðarhafs og geta því varla firrt sig ábyrgð á hildarleik undanfarinna vikna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×