Erlent

Eldur verður hvolpum að bana

Lögregla í bænum Lowell í Massachusetts í Bandaríkjunum rannsakar nú tildrög elds sem kviknaði í flutningabíl með þeim afleiðingum að sextíu hvolpar drápust. Lögregla segir ökumann hafa stöðvað flutningabíl sinn þegar hann varð þess var að tengivagn við bílinn var orðinn alelda. Ökumann og farþega sakaði ekki. Hvolparnir sem drápust vor átta til tólf vikna og voru fluttir frá gæludýraverslun í Salem í New Hapshire og átti að flytja þá í aðra búð í Nahua. Ekkert er vitað um tildrög eldsins sem stendur en grunur leikur á að blossi frá viftu í tengivagninum hafi kveikt bálið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×