Erlent

28 flúðu úr fangelsi í Belgíu

28 fangar flúðu úr Termond fangesli í austurhluta Flanders í Belgíu í nótt og í morgun. Sex þeirra hafa þegar fundist en hinna er enn leitað.

Tveimur fanganna tókst að taka þrjá fangaverði í gíslingu og neyða þá til að láta tuttugu og sex aðra lausa. Þeir fóru allir út á opið svæði fyrir fangana og tókst að klifra upp fangelsismúrana og út í frelsið.

Enginn særðist á flóttanum, hvorki fangaverðir né fangarnir sjálfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×