Erlent

Lestarslys í Egyptalandi

Minnst 80 eru látnir eftir lestarslys í Egyptalandi, um 20 kílómetra fyrir norðan Kaíró í morgun. Að því er egypska ríkisfréttastofan MENA hermir sinntu stjórnendur lestar ekki viðvörunarljósum á teinunum með þeim afleiðingum að hún keyrði á mikilli ferð á öftustu vagna annarrar lestar sem fór hægar. Segja sjónarvottar að vagnarnir hafi lagst saman eins og harmonikka. Þetta er þriðja stóra lestarslysið í Egyptalandi á þessu ári og er bágu ástandi lestarteina kennt um. Árið 2002 létust 360 manns þegar eldur kviknaði í fullri farþegalest.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×