Erlent

Kynferðisafbrot í Kambódíu

Tveir Þjóðverjar og þrír Kambódíumenn voru handteknir í gær fyrir að misnota tvær ungar stúlkur í Kambódíu. Þar á meðal var fjörutíu og tveggja ára gamall grunnskólakennari frá München sem starfaði í einkaskóla í Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu.

Lögreglan handtók manninn í íbúð hans eftir að myndbandsupptaka fannst þar sem maðurinn hafði mök við tvær víetnamskar stúlkur á barnsaldri. Móðir einnar stúlkunnar og par sem leigði stúlkurnar út til viðskiptavina voru einnig handtekin. Þó nokkrir útlendingar hafa undanfarið verið handteknir í Kambódíu fyrir kynferðisafbrot á börnum og eiga þeir yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsisdóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×