Erlent

Tugir líka hafa þegar fundist

Tupolev-154 vél líkt og sú sem fórst í Úkraínu í morgun.
Tupolev-154 vél líkt og sú sem fórst í Úkraínu í morgun. MYND/AP

Farþegaflugvél með um hundrað og sextíu farþega og tíu manna áhöfn um borð hrapaði í austur hluta Úkraínu í dag. Vélin var á leið frá Suður-Rússlandi til Sánkti Pétursborgar. Vélin hrapaði um fjörutíu og fimm kílómetra norður af bænum Donetsk og er flakið sagt standa í ljósum logum.

Yfirvöld í Úkraínu hafa þegar sent þyrlur á vetvang. Ekki liggur fyrir hve margir hafa farist í slysinu en rússnesk yfirvöld segja þrjátíu lík þegar hafa fundist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×