Pat Riley verður áfram með Miami 23. ágúst 2006 17:11 Pat Riley ætlar að þjálfa Miami eitt ár í viðbót NordicPhotos/GettyImages
Hinn sigursæli þjálfari Pat Riley, sem þjálfaði Miami Heat og stýrði liðinu til NBA meistaratitilsins í vor, hefur tilkynnt að hann muni þjálfa liðið áfram á næstu leiktíð. Riley hefur legið undir feldi í allt sumar og í dag gaf Miami út yfirlýsingu þar sem fram kemur að Riley verði áfram þjálfari liðsins. Riley er auk þess forseti félagsins, en í desember á síðasta ári ákvað hann að reka Stan Van Gundy þjálfara og taka sjálfur við liðinu. Þessi ákvörðun var afar umdeild á sínum tíma, en Riley þaggaði niður í gagnrýnendum sínum þegar hann stýrði liðinu nokkuð óvænt til sigurs í vor eins og frægt er orðið. Riley hefur unnið næst flesta sigra allra þjálfara í sögu NBA deildarinnar. Hann hóf ferilinn sem aðalþjálfari hjá LA Lakers og var þar afar sigursæll, fór þaðan til New York og kom því liði í úrslitin árið 1994 og hefur síðan verið þjálfari og síðar forseti Miami.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira