Erlent

Nyhedsavisen kemur út 6. október næstkomandi

Búið er að ákveða fyrsta útgáfudag Nyhedsavisen, nýs fríblaðs dótturfélags Dagsbrúnar. Það kemur fyrst út í Danmörku 6. október næstkomandi. Stefnt er að því að blaðinu verði dreift á um 900 þúsund heimili ef allt gengur eftir. Nokkuð hefur verið um hrakspár undanfarið vegna mikillar samkeppni á þessum nýja markaði og frétta af því að fjárhagsstaða útgefandans sé ekki jafnstyrk og búist var við. Forsvarsmenn Nyhedsavisen blása hins vegar á alla svartsýni þar sem blaðið komi út í mun stærra upplagi en keppinautarnir Dato og 24/7 sem einungis eru borin í rúmlega 100 þúsund hús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×