Erlent

Hús Hamas-liða eyðilagt

Ísraelsher gerði í nótt loftárás á heimili háttsetts liðsmanns Hamas-samtakanna á Gaza-svæðinu. Enginn mun hafa fallið í árásinni en tveir vegfarendur særðust lítillega.

Ísraelsher segist hafa fengið vísbendingar um að vopn væru geymd í húsinu. Íbúar þar voru hvattir til að yfirgefa húsið áður en látið var til skarar skríða. Húsið gjöreyðilagðist í árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×