Erlent

Starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar látnir lausir

Mannræningjar á Gaza-svæðinu hafa látið tvo starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar bandarísku lausa. Þeir hafa verið í haldi mannræningja síðan um miðjan mánuðinn. Myndband með mönnunum var birt snemma í morgun, skömmu áður en þeir voru látnir lausir.

Mannræningjarnir, áður óþekkt samtök herskárra Palestínumanna, höfðu gefið Bandaríkjamönnum frest fram til gærmorguns til að láta múslima sem þeir hafa í haldi lausa. Ekki var orðið við þeirri kröfu. Ekki var vitað hvað mönnunum yrði þá gert og því var það léttir fyrir marga þegar nýtt myndband með þeim var birt í morgun. Skömmu síðar bárust svo fréttir af lausn mannanna.

Á sama tíma reyndu fulttrúar palestínsku heimastjórnarinnar að tryggja lausn gíslanna og það hefur tekist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×