Erlent

Engin flóðbylgjuhætta

Engin flóðbylgja myndaðist í kjölfar jarðskjálfta sem varð neðansjávar austur af Indónesíu, nánar tiltekið við Molucca-eyjar, skömmu eftir hádegi í dag.

Jarðskjálftinn mældist 5,4 á Richter en í fyrstu var hann sagður hafa mælst 6,4 á Richter.

Yfirvöld sendu frá sér flóðbylgjuviðvörun en síðan kom í ljós að engin hætta var á ferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×