Erlent

Telur Breta verða farna frá Írak í lok árs 2007

MYND/AP

Jalal Talabani, forseti Íraks, telur að allir breskir hermenn verði farnir heim frá Írak í lok næsta árs. Þessu lýsti hann yfir eftir fund með Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands, í dag. Um sjö þúsund breskir hermenn eru nú í Írak en íröksk yfirvöld vonast til að innlendur her og lögregla geti tekið við öryggisgælsu í landinu smám saman af hernámsliðunum. Utanríkisráðherra Bretlands vildi ekki gefa upp hvort fyrir lægi hvenær Bretar færu frá Írak en bresk yfirvöld hafa áður sagt að þau vilji minnka herafla sinn um helming í landinu á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×