Nýtt myndband með bin Laden 7. september 2006 22:19
Arabíska fréttastöðin Al Jazeera hefur sýnt myndband sem sagt er vera af fundi Osama Bin Laden, leiðtoga al Kaída hryðjuverkasamtakanna, með nokkrum þeirra sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin ellefta september 2001. Á mánudaginn verða fimm ár liðin frá hryðjuverkunum. Að sögn al Jazeera sýnir myndbandið leiðtoga al Kaída búa sig undir árásirnar og æfa framkvæmd þeirra. Bin Laden sést ganga um í fjallahéraði í dökkum kufl og hvítan höfuðbúnað. Hann sést ræða við háttsetta al Kaída liða á borð við RAmzi Binalshibh og Mohammed Atef. Binalshibh var tekinn höndum árið 2002 en Atef féll í loftárásum Bandaríkjamanna á Afganistan árið 2001. Á al-Jazeera var einnig sýnd upptaka sem sögð er sýna Abu Hamza al-Muhajir, nýjan leiðtoga al Kaída í Írak þar sem hann hvetur Íraka til að taka þátt í andspyrnu gegn Bandaríkjamönnum þar í landi. Ekki hefur fengist staðfest að þetta sé al-Muhajir. Á upptökunni segist hann þess full viss að andspyrnumenn vinni fullnaðarsigur í Írak. Al-Jazeera sýndi auk alls þessa kveðjumyndbönd tveggja þeirra sem tóku þátt í árásunum ellefta september 2001. Forsvarsmenn Al-Jazeera hafaf ekki viljað gefa upp hvernig þeir komust yfir myndböndin.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira