Erlent

Geimskot Atlantis reynt í dag

Atlantis á skotpallinum á Flórída í fyrradag.
Atlantis á skotpallinum á Flórída í fyrradag. MYND/AP

Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun reyna að skjóta geimskutlunni Atlantis á loft klukkan tuttugu mínútur í fjögur í dag ef aðstæður leyfa. Vegna árekstra við dagskrá rússnesku geimferðastofnunarinnar reyndist ekki hægt að fresta skotinu til þess að skipta mætti um bilaða ljósavél sem hefur verið til vandræða. Ef ekki tekst að skjóta geimfarinu á loft gefst líklega ekki annað tækifæri í dagsljósi fyrr en í októberbyrjun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×