Erlent

Ringulreið í Írak

Töluverð ringulreið skapaðist þegar bílsprengja sprakk nálægt mosku sjía í Haswan, fimmtíu kílómetra suður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun.

Engan sakaði í sprengingunni sjálfri en þegar vegfarendur þustu að skall sprengja úr sprengjuvörpu nærri mannfjöldanum. Vitni segja tvo hafa týnt lífi og þrettán særst. Yfirvöld hafa ekki staðfest það. Tvær aðrar sprengjur sprungu í Bagdad í morgun en engan sakaði í þeim árásum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×