Erlent

2 létust í gassprengingu í Mílanó

MYND/AP

Að minnsta kosti 2 týndu lífi og 50 slösuðust, þar af mörg börn, þegar sprenging varð í íbúðarhúsi í Mílanóborg á Ítalíu í kvöld. Talið er að gasleki hafi valdið sprengingunni.

Aldraður ítalskur karlmaður og ungur Albani, sem var á ferð framhjá húsinu þegar sprengingin varð, létust.

Vitni segja framhlið hússins hafa hrunið og glerbrot og húsgöng legið á nærliggjandi götum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×