Erlent

Önnur bílsprengingin í Gautaborg á tveimur dögum

Vegfarandi slasaðist þegar öflug sprenging varð í bíl sem stóð við Vasatorg í Gautaborg í Svíþjóð í morgun. Í kjölfarið kviknaði í að minnsta kosti tveimur öðrum bílum og lagði mikinnn reyk yfir svæðið. Aftonbladet hefur eftir lögreglu að bíllinn hafi verið tómur en ekki liggur fyrir hvort um var að ræða slys eða einhvers konar tilræði. Þetta er annar bíllinn sem springur í loft upp í Gautaborg á tveimur dögum því gær eyðilagðist bíll eftir að handsprengja sprakk undir honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×