Erlent

Stjórnmálastarfsemi bönnuð í Taílandi

Þótt lífið í Taílandi sé að komast í eðlilegt horf eftir valdaránið eru skriðdrekar enn á götum Bangkok.
Þótt lífið í Taílandi sé að komast í eðlilegt horf eftir valdaránið eru skriðdrekar enn á götum Bangkok. MYND/AP

Taílenska herforingjastjórnin bannaði í dag alla stjórnmálastarfsemi í landinu, bæði fundi stjórnmálaflokka og aðra starfsemi sem snýr að stjórnmálum. Þetta gerir stjórnin tveimur dögum eftir að forsætisráðherra landsins var steypt af stóli og ber herinn því við að verið sé að tryggja að stjórnarskrábundið konungsveldi starfi á eðlilegan hátt eftir breytingarnar, eins og það var orðað í tilkynningu sem lesin var í taílensku sjónvarpi. Ekki var gefið upp hvenær stjórnmálaflokkar mættu aftur boða til funda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×