Erlent

Fimm létust í árásum á Gaza

Fimm Palestínumenn létust í tveimur árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í dag.

Fimm Palestínumenn létust í tveimur árásum Ísraelshers á Gazasvæðið í dag. Í annarri árásinni létust þrír unglingar sem voru að gæta geita.

Ísraelsmenn hafa reglulega gert árásir á Gazasvæðinu frá því í júní en þá var ísraelski hermaðurinn Gilad Shalid fangaður af Palestínumönnum. Með árásunum vilja þeir knýja á um lausn hans. Herinn segir árásunum einnig ætlað að stöðva árásir Palestínumanna á Ísrael. Frá lokum júní hafa tvö hundruð og þrjátíu palestínskir borgarar látið lífið í árasum Ísraelsmanna á svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×