Erlent

Kjarnorkuviðræðum við ESB miðar vel

MYND/AP
Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sagði í dag að viðræðum við fulltrúa Evrópusambandsins um kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran miðaði vel. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsetans í New York í dag. Hann sagðist vona að ekkert myndi trufla þær viðræður. Ahmadinejad sagði Írana tilbúna til að ræða þann möguleika að hætta auðgun úrans ef rétt skilyrði væru fyrir því. Hann gaf þó ekkert nánar út á það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×