Erlent

Grunaðir um árás á bænahús gyðinga í Noregi

Lögreglan í Oslo í Noregi hefur handtekið fjóra menn sem eru grunaðir um að hafa gert árás á bænahús gyðinga í borginni um síðustu helgi. Skotið var á bænahúsið.

Einn þeirra handteknu var tekinn höndum í Þýskalandi síðasta sumar, grunaður um að skipuleggja hryðjuverkaárás þegar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu stóð sem hæst. Hann var svo handtekinn í Noregi í síðustu viku grunaður um að hafa haft í hótunum við glæpafréttamann í Osló. Skotið var á hús hans í sumar.

Hinir handteknu neita því að hafa ráðist á bænahúsið. Mennirnir eru allir aðfluttir til Noregs og einn þeirra frá Pakistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×