Erlent

Kemur í fyrsta sinn fram opinberlega eftir átök

MYND/AP

Hassan Nasrallah, leiðtogi Hizbollah-skæruliða, kom fram opinberlega í dag í fyrsta sinn síðan til átaka kom milli Ísraela og skæruliðahópsins í sumar. Nasrallah tekur þátt í miklum útifundi í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag. Svo virðist sem Hizbollah leiðtoginn sé óhræddur þó Ísraelar hafi hótað að myrða hann nái þeir til hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×