Erlent

Fóstur skorið úr kvið látinnar konu

MYND/AP

Lögregla í Saint Louis í Bandaríkjunum leitar nú þriggja barna sem hafa verið týnd síðan á mánudaginn. Þau eru eins, tveggja og sjö ára. Móðir þeirra fannst myrt í gær og hafði fóstur verið skorið úr kvið hennar. Lögregla telur sig hafa fundið fóstrið en það hefur ekki verið staðfest.

26 ára kona, sem sást í fylgd barnanna skömmu áður en þau hurfu, er nú í haldi lögreglu. Sú er sögð hafa lýst því fyrir vitnum að hún hafi jarðað andvana fætt barn sitt í vikunni. Lögregla rannsakar einnig hvort í þeirri gröf sé fóstrið að finna. Málið er allt hið óhugnarlegasta og leita íbúar í Saint Louis barnanna þriggja ákaft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×