Erlent

Dregur fréttir af andláti bin Ladens í efa

MYND/AP

Sendiherra Pakistana í Bandaríkjunum dregur í efa fréttir fransks blaðs frá í gær um að Osama bin Laden, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé allur. Blaðið vitnaði í leynilega skýrslu frönsku leyniþjónustunnar þar sem sagði að hann hefði dáið úr taugaveiki í Pakistan í síðasta mánuði.

Sendiherran segir að ef Pakistanar hefðu haldbærar upplýsingar um hvar bin Laden héldi sig væri nú þegar búið að handtaka hann.

Fulltrúi bandarískar samtaka sem fylgjast með samskiptum herskárra hópa segjast aðeins geta staðfest það að bin Laden hafi verið á lífi í lok júní. Ekki sé hægt að staðfesta neitt um hann síðan þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×