Erlent

Kynþokkafullir og krúttlegir auðmenn

Á meðan bandaríska viðskiptatímaritið Forbes birtir árlegan lista sinn yfir 400 ríkustu Bandaríkjamennina hefur Financial Times tekið saman annars konar lista. Þar er kaupsýslumönnum skipt í hópa eftir ýmsu, þar á meðal fegurð og krúttleika. Samkvæmt listanum eigum við Íslendingar kynþokkafyllsta kaupsýslumanninn.

Sá er Björgólfur Thor Björgólfsson og er hann sagður bera af þegar kemur að kynþokka. Hann er nefndur fyrsti íslenski milljarðamæringurinn og 350. ríkasti maður heims. Auðæfi hans nemi jafnvirði rúmlega 150 milljarða íslenskra króna. Hann er sagður geta afvopnað andstæðinga sína með brosinu einu saman og ekki skemmi fyrir að hann sé vaxinn eins og sannur víkingur.

En blaðamenn Financial Times flokka fleiri fjármálamenn eftir ýmsum skilyrðum. Þeir umdeildustu eru Walton-fjölskyldan sem rekur Wal-Mart verslunarkeðjunnar bandarísku sem er sökuð um að greiða of lág laun og sýna samfélagslegt ábyrgðarleysi. Fjárfestarnir Esther og Alicia Koplowitz, frá Spáni eru sagðar best klæddar en Philip Knight, stofnandi Nike, er verst klæddi auðmaðurinn. Krúttlegasti auðmaðurinn er Ty Warner sem stofnaði fyrirtæki utan um framleiðslu á tuskudýrum fyrir þrettán árum. Sparsamasti milljarðamæringurinn er Ingvar Kamprad, stofnandi Ikea. Hann er sagður keyra um á tólf ára gömlum Volvo og ferðast með almenningsamgöngutækjum í vinnuna á hverjum virkum degi. Stofnendur Google leitarvefsins eru sagðir hafa valdið mestu umbyltingunni og flestir vilja víst fá Rússan Roustam Tariko í samkvæmi sín enda mun hann skemmtilegur og ekki skemmir fyrir ef hann tekur með eitthvað af lúxus vodkanum sem hann framleiðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×