Hagnaður Avion Group undir væntingum 25. september 2006 09:22 Magnús Þorsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Group.
Avion Group skilaði rétt rúmlega 201,5 milljóna króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi reikningsársins sem lauk í júlí. Þetta er undir væntingum stjórnenda félagsins en bæði KB banki og Landsbankinn reiknuðu með að félagið myndi skila yfir fimm milljarða króna hagnaði á fjórðungnum. Sala eignarhlutar í Avion Aircraft Trading hefur ekki gengið eftir líkt og áformað var en stjórnendur félagsins höfðu búist við hún myndi ganga í gegn á þriðja ársfjórðungi og byggðist spá bankanna á þeirri sölu. Í tilkynningu frá félaginu segir að rekstrartekjur á tímabilinu hafi numið tæpum 48,1 milljarði króna en rekstrargjöld voru neikvæð um 46,7 milljarða krónur. Eigið fé Avion Group nam tæpum 37,2 milljörðum króna í júlílok og var eiginfjárhlutfall 25 prósent. Þá nam tap Avion Group á fyrstu níu mánuðum ársins 4,9 milljörðum króna. Sala eignarhlutar í Avion Aircraft Trading hefur ekki gengið eftir líkt og áformað var en stjórnendur félagsins höfðu búist við hún myndi ganga í gegn á þriðja ársfjórðungi. Rekstur Avion er árstíðabundinn og myndast hagnaður á seinni hluta rekstrarársins. Áætlanir Avion Group fyrir yfirstandandi ár gera ráð fyrir minni framlegð en stefnt var að og segir í tilkynningu frá félaginu að fjórði ársfjórðungur verði fyrirtækinu erfiður, aðallega vegna erfiðra markaðsaðstæðna í Bretlandi. Hryðjuverkaógn og miklar seinkanir, óvenju heitt sumar, og hert öryggisgæsla hafi sett strik í reikninginn og megi búast við að framlegðarforsendur fjórða ársfjórðungs og þar með ársins í heild náist ekki.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira